Færsluflokkur: Íþróttir

Úrslitakeppnin í NHL að hefjast... núna rétt í þessu

Núna í þessum skrifuðu orðum er verið að syngja bandarískaþjóðsönginn í Detroit þar sem Detroit Redwings taka á móti Dallas Stars.  Fyrirfram eru hokkíspekúlantar búnir að spá verulega í spilinn og eru búnir að komast að þeirri niðurstöðu að leikirnir þurfa að ákvarðast af öðru en markmönnunum þar sem þeir eru í fanta stuði þessa daganna.  Margar vangaveltur hafa verið um fyrirliða Dallas Stars, Brendan Morrow, sé starfisínu vaxinn og náði að leiða lið sitt til sigurs í þessari úrslitakeppni.  Kunnáttumenn í íshokkí með fulltingi tölfræðisnillinga í NHL hafa sýnt fram á að Brendan hafi tekið þátt í flest öllum mörkum hjá Dallas í þessari úrslita-rimmu sem núna er í gangi.  Einnig hefur hann Mike Modano, aðstoðar fyrirliði, gert mikið fyrir liðið... svo ekki sér minnst á Marty Turco, markmann Dallas, sem hefur farið mikinn í þessari rimmu.
Detroit hefur úr afskaplega reynslumiklu liði úr að moða t.d þann aldna leikmann Chris Chelios sem er búin að spila 255 úrslitaleiki í NHL um ævina, svona til gamans þá eru mest 16 úrslitaleikir í NHL á hverju ári og það mundi þýða að hefði hann spilað til úrslita á hverju ári... þá hefði hann gert það í rúmlega 15 ár.
Fleiri leikmenn í Detroit koma til greina hvað varðar árangurk einsog svíin Holmström og Kronwall sem eru búnir að gera góða hluti svo og Johann Frantsen sem hefur komið hvað mest á óvart.... 
 
Staðinn er strax orðin 1 - 0 fyrir Detroit og ætla ég að setja punkt hér við og horfa á leikinn....
 
HP 

HM - Kanada - Milliriðlar

34dd315aa2Ennþá halda ein og ein óvænt úrslit að líta dagsins ljós á HM í Kanada. Segja má að frændur okkar norðmenn séu að koma þjóða mest á óvart því þeir bættu öðrum sigri í sarpinn með því að leggja Þjóðverja að velli með þremur mörkum gegn tveimur. Því miður er ekki hægt að segja sömu sögu af vinum okkar Svíum sem töpuðu gegn Sviss en Svíarnir náðu aðeins að skora tvö mörk gegn fjórum mörkum Svisslendinganna. En ef við byrjum á botninum, þar koma vandræði Slóvaka mest á óvart en þeir mæta Slóvenum í keppninni um hvort liðið fellur. Hinar þjóðirnar sem mætast Frakkar og Ítalir og sú þjóð sem er á undan að vinna tvo leiki heldur sæti sínu í efstu deild.

Í milliriðlunum eru einu ósigruðu liðin Sviss og heimamenn frá Kanada sem þessa stundina dvelja í toppsæti síns riðils. Rússar og Finnar verma svo sæti númer tvö en athygli vekur að USA og Svíar eru í fjórða sæti síns riðils. Á undan þeim eru lið Noregs, sem eins og ég minntist á áður hefur komið mikið á óvart og lið Tékka en það kemur nú ekki jafn mikið á óvart.

Enn er hinsvegar nóg af stigum í pottinum og stundum vill það nú verða þannig að stóru þjóðirnar stíga upp þegar á þarf að halda og klára sína leiki.

Við sjáum hvað setur en í dag leika Svíar við Dani og að sjálfsögðu ætla Svíar sér sigur. Í hinum leiknum taka Kanadamenn á móti spútnikliði Noregs eða kanski bara Davíð á móti Golíat. 

 


Ungir og efnilegir

Í framhaldi af komu "Útvaldra 95" til Íslands var tveimur ungum og efnilegum íshokkíleikmönnum landsins fæddum 1994 boðið að fara til Finnlands og Svíþjóðar að leika með "Útvöldum 94".

                            

IMG_0371Það voru þeir félagar Steindór Ingason úr Birninum og Björn Róbert Siguðarson úr Skautafélagi Reykjavíkur sem lögðu upp frá landinu að morgni 20. apríl sl. Ferðinn var heitið til Helsinki í Finnalandi.  Flogið var í byrjun á Kaupmannahöfn en þar sem bið var eftir áframhaldandi flugi skelltu þeir sér með ættingjum í Tívolí á meðan beðið var.

 

Í Finnlandi hittu þeir fyrir félaga sína úr Howe Elite 94 og þjálfara liðsins Travis Howe, en liðið er kennt við afa hans Gordie Howe sem er einn af lifandi goðsögnum í íshokkíheimnum í dag.  Í Finnlandi æfðu þeir og léku tvo leiki gegn sterkustu félagsliðum Finnlands.  Töpuðust þeir leikir báðir enda kannski engin furða þar sem leikmenn voru að hittast og spila saman í fyrsta skipti.  Að kveldi þriðja dags í Helskinki var lagt af stað til Stokkhólms með næturferju og var það ferðalag mikið ævintýri í glæsiskipi.  Þar tóku við æfingar í höfuðborg Svía og undirbúningur fyrir mót.  Í mótinu spiluðu úrvalslið skipuð amerískum og kanadískum leikmönnum, auk sænksra úrvalsliða og liðs frá Lettlandi, leikmönnum fæddum árið 1994.

 

IMG_0372Allir spiluðu á móti öllum en síðan var play off meðal efstu liða.  Gengi liðs strákana, Howe Elite, var misjafnt enda varð liðiðir nokkrum skakkaföllum, þar sem nokkrir leikmenn helltust úr lestinni vegna meiðsla, m.a. annar markvörðurinn.  Þá meiddist Björn Róbert í fyrsta leik, brákaði rifbein og sat upp í stúku næstu tvo leiki.  Í fjórða leik reyndi hann aftur að spila, tókst að skora fyrsta mark liðsins eftir aðeins 44 sekúndur.  stuttu seinna varð hann þó að hætta leik vegna meiðslana og lék ekki meir.  Steindór hins vegar lék alla leikina og stóð sig frábærlega.  Strákarnir voru sjálfum sér og íslensku hokkíi til mikils sóma í ferðinni jafnt  utan vallar sem innan.  Þjálfari liðsins var mjög ánægður með þá og þegar haft er í huga sá aðstöðu munur sem er til æfinga og leikja í íshokkí hér á landi og erlendis í þeim löndum þar sem íshokkí er meðal vinsælustu íþróttagreina landana (Svíþjóð, Finnland, Bandaríkin, Kanada), þá er frammistaða strákanna beggja frábær.  Að standast þeim bestu snúning í sínum aldursflokki er nokkuð sem þeir geta verið virkilega stoltir af.

 

Til að gera langa sögu stutta þá tapaði lið strákana í play-offi fyrir liði sem fór alla leið í úrslitaleikinn, sem þeir að vísu töpuðu.  Enn jafnt og skemmitlegt mót og ótrúleg upplifun fyrir Steindór og Björn Róbert og ómetanleg reynsla fyrir þá að spila erlendis með frábærum spilurum.

 

Strákarnir vilja enn og aftur koma á framfæri sérstökum þökkum til Sergei Zak þjálfara, en fyrir milligöngu hans komust strákarnir í þessa ferð, ferð sem mun aldrei líða þeim úr minni.


Kanadamenn rétt ná að kreista fram sigur á HM

c17897ee9d Í gær áttust við stórveldiin í íshokkíinu, Bandaríkin og Kanada. Fyrirfarm var búst við að þessi leikur mundi vera nokkuð jafn og ómögulegt væri að segja til um hvort liðið mundi vinna leikinn.  Kanadamenn voru fyrstir til að skora og var þar að verki Brent Burns.  Stuttu síðan náði hinn tannfríði leikmaður Dany Heatley að auka enn á forrystu Kanadamanna.  Í öðrum leikhluta náðu Kanadamenn enn að auka á forskotið og var það Jonathan Towes, ungur og upprennandi stjarna í íshokkíheiminum.  Bandaríkjamenn náðu að höggva örlítið á forskotið með mörkum frá Zach Parise og Patrick Sullivan.  Staðn var nokkuð vænleg fyrir Kanadamenn þegar komið var í þriðjulotu, 3-2, og batnaði enþá meira þegar Derek Roy skoraði fjórða mark Kanadamanna og sigur á næsta leiti.  En Bandaríkamenn voru á öðru máli og hisjuðu uppum sig brækurnar og fór að spila af fullri hörku og uppskáru tvö mörk á rétt rúmri mínútu og staðinn orðin jöfn og allt í járnum.  Það var svo sá sem byrjaði markaskorunina sem endaði hana.  Sóknarmaðurinn Dany Heatley náði síðan að koma Kanadamönnum yfir þegar rétt um 45 sekúndur lifði leiks.  Bandaríkjemenn tóku markmann sinn útaf til þess að freista þess að jafna en allt kom fyrir ekki og Kanadamenn unnu leikinn. HP

Þriðja keppnisdegi að ljúka á HM að ljúka...

Danir seigir... .... og leik Dana og Ítala í fullum gangi, og það sem merkilegra er... Danir eru yfir.  Ítalir hafa talist til betri hokkíþjóða, ef litið á heimslistann þá eru Ítalir í 13 sæti.  Danir hafa hinsvegar farið ansi hratt upp stigann undanfarin ár enda hefur áhugi og vinnsældir íshokkís að aukast nokkuð jafnt og þétt undanfarin áratug þar í landi. 
Rússar rétt unnu Tékka 5 - 4 og Kandamenn söltuðu Lettland 7 - 0.  Núna rétt í þessu var leikur Bandaríkjana og Slóvakíu að hefjast að það verður gaman að sjá hvernig þessir leikir enda.
HP 

Fyrsti dagur á HM í íshokkí hafinn með látum!!

Núna þegar það eru liðnir tveir keppnisdagar á HM í íshokkí, sem haldið er í Kanada (í fyrsta skipti !!) er vert að skoða hvaða lið hafa verið að vinna og eru líklegust til að fara með sigur af hólmi í þessu móti.Fyrsti leikur mótsis var leikur Danmerkur og Tékklands. Fyrirfram var búist við að þetta yrði léttur leikur fyrir Tékka.... sú var rauninn þar sem Tékkar lögðu frændur vora Dani 5 - 2. Seinna sama dag var leikur á milli Kanada og Slóveníu þar sem Kandamenn fór með sigur af hólmi nokkuð öruggt 5 -1. Rússar spiluðu við Ítalíu og Bandaríkamenn spiluðu við Lettland og fór Rússar og Bandaríkjamenn nokkuð örugglega með sigur í sínum leikjum.
Á öðrum keppnisdegi var það leikur Svía og Hvít-Rússa sem vakti athygli þar sem Svíar rétt náðu að merja sigur 6 - 5.  Finnar bökuðu Þjóðverja, 5-1, Svisslendignar tóku Frakka, 4-1, og Slóvakar tóku Norðmenn í kennslustund og unnu þá 5-1.  Þessar tölur koma svo sem ekki mikið á óvart en þó verður að tejlast að leikur Svía og Hvít-Rússa sé áhugaverður þar sem Svíar hafa marg oft orðið heimsmeistarar og enþá oftar í örðu sæti..... oftar en ekki tapað úrslitum fyrir Kanadamönnum.

Hann liggur ekki á svari þessi....

Sú sérstæða uppkoma var í beinni útsendingu í vetur þegar Adolf Ingi Erlingsson tók viðtal við Aron Leví Stefánsson að Aron sló Adolf algjörlega útaf laginu með snöggu tilsvari við spurningum hans. Myndbandið er látið fylgja með þar sem það er nokkuð fyndið.

Smá snilld úr Stanlay Cup

Það verður víst að viðurkennast að HANN er í smá uppáhaldi hérna hjá mér. Hér klárar HANN fyrsta leikinn í seríunni hjá Philadelphia og Washington en staðan í því einvígi er nú 1 -1.


Útvaldir

europeselectsNú fer að styttast í að Útvaldir ´95 hefjist í Egilshöllinni. Um er að ræða hóp stráka fædda 1995 og fyrr sem koma til Íslands bæði frá Bandaríkjunm og Kanada en einnig koma leikmenn frá Finnlandi og Svíþjóð. Sem dæmi má nefna að strákar frá Ontario og Quebec mæta og í sænska og finnska hópnum má sjá leikmenn frá Jokerit og Vaxjö Lakers en þau lið eru stórlið í sinu heimalandi. Byrjað verður á morgun laugardag og haldið áfram til mánudags en á þessum þremur dögum munu liðin æfa á morgnana og leika á kvöldin. Á þriðjudaginn mun úrval íslenskra leikmanna bætast í hópinn og þá verður haldið mót með þáttöku allra liðanna. Heimsókn þessi er hvalreki fyrir unga íshokkíleikmenn á Íslandi sem gefst þarna kjörið tækifæri á að fylgjast með æfingum jafnaldra sinna frá löndum þar sem íshokkí er í hávegum haft og ekki síður að fá að etja kappi við þá.

Þegar keppni hér á landi er lokið munu gestirnir halda til Stokkhólms þar sem áfram verður haldið við æfingar og keppni. Veg og vanda af þessu mótahaldi hér á landi hefur haft Sergei Zak sem lengi hefur leikið og þjálfað hjá Birninum. Vonandi er þetta aðens byrjunin að því sem koma skal því heimsókn einsog þessi vekur áhuga á sportinu okkar og er það vel.

Dagskrá mótsins er hér


Úrslitaleikur

Í kvöld fer fram einn leikur á íslandsmóti í íshokkí. Það er leikur í
fjórða flokki a-drengja milli Bjarnarins og Skautafélags Reykjavíkur. Liðin eru jöfn að stigum fyrir leikinn og því allt undir Leikurinn fer fra í
Egilshöll og hefst klukkan 19.00. Þetta er ellefti leikur liðanna á
tímabilinu en að loknum tíu leikjum hafa bæði liðin 14 stig og því er
hér um hreinan úrslitaleik að ræða. Ég sá seinasta leik sem fram fór í
Laugardalnum nú í vikunni og þar var um jafnan og spennandi leik að
ræða allt fram á lokamínútuna. Það er því ástæða til að hvetja
aðstandendur og aðra áhugamenn um hokkí til að mæta upp í Egilshöll í
kvöld og berja augum leikmenn þessara liða því þeir verðskulda það svo
sannarlega.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband