Útvaldir

europeselectsNú fer að styttast í að Útvaldir ´95 hefjist í Egilshöllinni. Um er að ræða hóp stráka fædda 1995 og fyrr sem koma til Íslands bæði frá Bandaríkjunm og Kanada en einnig koma leikmenn frá Finnlandi og Svíþjóð. Sem dæmi má nefna að strákar frá Ontario og Quebec mæta og í sænska og finnska hópnum má sjá leikmenn frá Jokerit og Vaxjö Lakers en þau lið eru stórlið í sinu heimalandi. Byrjað verður á morgun laugardag og haldið áfram til mánudags en á þessum þremur dögum munu liðin æfa á morgnana og leika á kvöldin. Á þriðjudaginn mun úrval íslenskra leikmanna bætast í hópinn og þá verður haldið mót með þáttöku allra liðanna. Heimsókn þessi er hvalreki fyrir unga íshokkíleikmenn á Íslandi sem gefst þarna kjörið tækifæri á að fylgjast með æfingum jafnaldra sinna frá löndum þar sem íshokkí er í hávegum haft og ekki síður að fá að etja kappi við þá.

Þegar keppni hér á landi er lokið munu gestirnir halda til Stokkhólms þar sem áfram verður haldið við æfingar og keppni. Veg og vanda af þessu mótahaldi hér á landi hefur haft Sergei Zak sem lengi hefur leikið og þjálfað hjá Birninum. Vonandi er þetta aðens byrjunin að því sem koma skal því heimsókn einsog þessi vekur áhuga á sportinu okkar og er það vel.

Dagskrá mótsins er hér


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ég hef kíkt á þetta alla dagana, það er frábært að horfa á þessa stráka spila, þeir kunna þennan frábæraleik svo vel að það er unun að horfa á þá, og sérstaklega finst mér gaman að sjá hvað þeir eru góðir í að tékka og taka á móti tékki, það vantar að okkar strákar meigi tékka, enda sést það á eldri flokkum þar sem að það er leyft, þá kunna menn ekki að tékk, og ef að sumir eru tékkaðir þá verða þeir brjálaðir í skapinu, sem að er ekki gott.

Steini tuð (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 10:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband