Þetta er klárt.... Peter verður með fyrir Playoffs

peter-forsberg1

Þá er það klárt. Peter Forsberg ætlar að klára málið í dag, mánudag, og ætlar að klára ferilinn með Colorado Avalanche. Þessi 33 ára gamli sænski hokkí snillingur ætlar að öllum líkindum að segja þetta gott í NHL eftir þetta tímabil sökum þrálátra ökklameiðsla.

það er alveg ljóst að Peter verður mikil lyftistöng fyrir Colorado sem ekki hefur átt sjö dagana sæla og er núna í 10 sæti Vestur-deildarinnar.  Vonir eru bundnar við að hann komi Colorado inní Playoffs áður en það veður um seinan. 

Annar sænskur leikmaður hefur einnig verið á milli tananna á bandarískum fjölmiðlum og það er Mats Sundin, fyrirliði Toronto Maple Leafs, en þar ytra telja menn að honum verði skipt í annað lið þar sem Toronto á ekki möguleika á að komast Playoffs.  Hann er án efa einn besti leikmaður Toronto ásamt Nicolai Andropof sem er Íslenskum landsliðsmönnum kunnur síðan að Nicolai var fyrirliði landsliðs Kasakstan þegar þeir völtuðu yfir Íslendinga 63 - 0.

sundin_mats6

Gamli og góðir Toronto aðdáendur vilja reyndar ekki heyrt á það minnst að það eigi að skipta á Mats Sundin fyrir Toronto þar sem hann hefur verið þar síðastliðin 14 ár og allar líkur eru á að hann endi sinn NHL feril þar.  Þetta kemur hinsvegar allt í ljós þann 26.febrúar, á morgun, og verða næstu klukkutímar ansi spennandi því að ekki er ólíklegt að margir leikmenn muni ganga kaupum og sölum svona rétt fyrir "trade-deadline".


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband